Vestfjarðadeildin – Nýtt fólk í brúnni

Vonandi hafa margir séð að Gefum íslensku séns er orðið félag. Félag á landsvísu. Það gerðist 29. janúar á þessu ári. Félagið stefnir á að deildir eða starfshópar verði stofnaðir út um land allt. Er þegar kominn vísir að því á ýmsum stöðum og þreifingar í gangi. Í maí var svo stofnuð sérstök Vestfjarðadeild sem sér um viðburði og kynningar á Vestfjörðum og er komið nýtt fólk í brúna, nýtt myndarfólk sem ætlar sér að stýra með myndarbrag. Það ágæta fólk heitir Birta Ósk Hönnudóttir, Eyþór Bjarnason og Vanessa Isenmann. Allt fólk sem hefir mikinn á huga á málinu og vill láta gott af sér leiða.

Það er ekki úr vegi því Gefum íslensku séns byrjaði einmitt sem Vestfjarðaverkefni. Starfsemin var, og er, hvað mest í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík. Verkefnið hefði og aldrei orðið neitt ef ekki hefði verið fyrir Háskólasetur Vestfjarða og Peter Weiss fyrrverandi forstöðumanns þess. Þar var vettvangur skapaður til að vinna með hugmyndir sem miðuðu að því — og miða enn að því að — að fjölga tækifærum fólks sem, lærir íslensku sem annað mál, til að nota málið. Reynt var og er að skapa tækifæri með málhöfum til að fólk geti sem best tekið framförum í íslensku. Þetta er
samvinnuverkefni. Þetta er samfélagsverkefni.

©Kristinn Ingvarsson

Aðalmálið er samt að Jón Jónsson á Íslandi skilji betur hvernig máltileinkun, það að læra annað mál, gengur fyrir sig, að hann skilji að það er því sem næst ómögulegt að læra annað mál án þess að samfélagið sé móttækilegt fyrir íslensku með hreim, málfræði- og framburðarvillum. Fólk verður og að fá tækifæri til að gera mistök og
læra af þeim. Íslenskt samfélag þarf að verða íslenskuvænna og samfélagið þarf að vera duglegra að bjóða fólk velkomið í málsamfélagið og átta sig á að það er komið mislangt á leið. Stundum er nefnilega eins og samfélagið geri ekki ráð fyrir byrjendum. Stundum er eins og samfélagið haldi að annað hvort tali fólk íslensku eða þá ekki og að ekkert sé þarna á milli.

Í ljósi slælegrar niðurstöðu PISA-könnunarinnar væri heldur ekki vitlaus hugmynd að samfélagið fáist almennt meira við íslensku, við opinbert tungumál landsins. Það er næsta víst hagur allra. Vestfjarðadeildin ætlar sér einmitt það. Eru bundnar miklar vonir við að fólk leggi málefninu lið með tíma sínum.

Það getur svo auðvitað einnig gengið í félagið: Gefum íslensku séns – Viltu gerast
stofnfélagi?

Endilega hafið samband í gegnum gis.vestfirdir@gmail.com eða á Facebook nú eða í gegnum www.gefumislenskusens.is.


Með íslenskuvænum kveðjum.