
Gefum íslensku séns vill bjóða þér að gerast stofnfélagi
Þann 29. janúar síðastliðinn var haldinn stofnfundur formlegs félags um verkefnið Gefum íslensku séns sem snýst um að stuðla að vitundarvakningu meðal móðurmálshafa íslensku um hvað máltileinkun (það að læra íslensku sem annað mál) felur í sér. Í því skyni verður leitast við að skapa sameiginlegan grundvöll með móðurmálshöfum og þeim sem kunna málið vel til að miðla málinu til þeirra sem læra það, ásamt því að skapa hvata til að nota það við sem flest tækifæri. Auðvitað má svo einnig kynna sér um hvað Gefum íslensku séns stendur fyrir á heimasíðu félagsins.
Gefum íslensku séns er fyrst og síðast samfélagsverkefni sem stofnað var til á sínum tíma hjá Háskólasetri Vestfjarða. Gefum íslensku séns er því ekki nýtt af nálinni – verkefnið og undanfarar þess hafa í gegnum tíðina staðið að allskonar uppákomum, viðburðum, kynningum, skrifum og fleira allt frá árinu 2020 og allajafna hefur verið stígandi í starfinu. Og nú er Gefum íslensku séns orðið formlegt félag sem einstaklingar, félög, fyrirtæki og sveitarfélög geta gengið í. Lög félagsins er að finna á vefsíðu www.gefumislenskuséns.is. Út árið er sá möguleiki fyrir hendi að gerast stofnfélagi og það má gera með því að senda tölvupóst á gis@gefumislenskusens.is og greiða félagsgjald. Staðfesting á greiðslu þarf að berast á sama netfang.
Félagsgjaldið er 2.500 krónur fyrir einstaklinga eldri en 18 ára en 50.000 krónur fyrir lögaðila, fyrirtæki, stofnanir og önnur félagasamtök. Ekki er samt bannað að greiða hærra gjald.
Með aðild að félaginu styður þú við starf félagsins sem vill halda áfram á sömu braut og lögð var á sínum tíma á Vestfjörðum en jafnframt færð þú reglulega fréttir af starfi félagsins, aðgang að fræðsluefni og öðru efni til að koma áþekkri starfsemi á koppinn í þínu sveitarfélagi og liðsinni við að koma henni af stað. Það að gerast meðlimur í þessu félagi er þó aðallega stuðningur og þátttaka: Þátttaka sem stuðla á að því að íslenskan verði mál okkar allra.
Hér má finna reikningsnúmer og kennitölu félagsins.
0133-26-021398
Kennitala: 650326-0830
Netfang er sem áður sagði: gis@gefumislenskusens.is
Með vinsemd og virðingu og íslenskuvænum kveðjum,
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, ritari Gefum íslensku séns

