Gefum íslensku séns er félag frá Vestfjörðum, þar sem stærsti hluti starfsemi okkar hefur farið fram hingað til. Við viljum hins vegar að íslenskan fái að hljóma um allt land, og markmið okkar er að bjóða upp á viðburði þar sem fólk á öllum tungumálastigum getur æft sig í öruggu og hvetjandi umhverfi – í öllum landshlutum.
Hér fyrir neðan geturðu nálgast upplýsingar um þær deildir sem eru nú þegar að starfa eða eru í undirbúningi.
Vestfjarðardeildin
Vestfjarðadeildin vinnur samkvæmt hugmyndafræði hugmyndafræði Gefum íslensku séns og stendur reglulega að viðburðum og kynningum til vitundarvakningar. Hún var stofnuð í apríl 2026 og vill vera virk á öllum Vestfjörðum en hingað til eingöngu verið virk á Ísafjarðarsvæðinu og í Bolungarvík. Hún vill endilega fá fleira fólk til liðs við sig frá fleiri stöðum á Vestfjörðum.
Gefum íslensku séns – Vestfjarðardeildin er einnig á facebook svo þið getið fylgjast með.
Gefum íslensku séns á Suðurlandi – verkefni á vegum SASS
Gefum íslensku séns er áhersluverkefni hjá SASS sem miðar að því að fjölga tækifærum fólks af erlendum uppruna til að nota íslensku í daglegu lífi og taka virkari þátt í nærsamfélaginu. Verkefnið er unnið að fyrirmynd Gefum íslensku séns á Vestfjörðum og í samstarfi við verkefnið þar.
Áhersla er lögð á að verkefnin taki mið af þörfum hvers svæðis. Þau geta meðal annars falist í íslenskunámskeiðum, samveru, samfélagsfræðslu og öðrum viðburðum þar sem fólk fær raunveruleg tækifæri til að nota og tala íslensku.
Tengiliðir verkefnisins eru Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri byggðamála hjá SASS, og Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar Árborgar.
Viltu stofna deild í þínu hluta landsins?
Sérðu ekki upplýsingar um deild á þínu svæði? Við tökum fagnandi á móti öllum sem vilja leggja hönd á plóg við að efla íslenskuna í heimabyggð. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú vilt stofna deild eða hleypa af stokkunum nýjum viðburðum!
