Sumardagskrá Gefum íslensku séns á Ísafirði tókst virkilega vel til. Við erum afar þakklát fyrir góða mætingu, frábæra stemningu og ómetanlegan stuðning samstarfsaðila okkar, meðal annars Ferðafélags Ísfirðinga og Háskólaseturs Vestfjarða.
Íslenska er töluð alls staðar!
Hjá Gefum íslensku séns trúum við því að tungumálið eigi heima í daglegu lífi, ekki bara inni í kennslustofum. Við viljum ekki að íslenska sé bara skólafag, heldur tæki til að tengja fólk saman. Hvar er betra að kynnast en í sameiginlegri upplifun úti í náttúru?
Að læra nýtt tungumál er oft eins og löng ferð. En af hverju ekki að fara í þá ferð bókstaflega? Sumarið bauð upp á þrjár spennandi gönguferðir í samstarfi við Ferðafélag Ísfirðinga þar sem aðalatriðið var að spjalla saman á íslensku:
- Fyrsta ferðin var miðvikudaginn 15. júlí kl. 17.30, en þá var farið í Gefum íslensku séns á eyrinni í Neðstakaupstað á Ísafirði undir fararstjórn Jónu Símoníu Bjarnadóttur. Þar var gengin um 1–2 km leið á láglendi í 1–2 klukkutíma þar sem stoppað var á völdum stöðum og sagt frá því sem fyrir augu bar.
- Önnur ferðin fór fram miðvikudaginn 22. júlí kl. 17.30 hjá Safnahúsinu á Ísafirði undir yfirskriftinni Gefum íslensku séns í hlíðinni undir fararstjórn Ómars Smára Kristinssonar. Sú ganga var um 4 km að lengd með um 100 metra hækkun í um 2 klukkutíma.
- Þriðja og síðasta ganga sumarsins var þann 29. júlí, þegar gengið var á Naustahvilft í samstarfi við Ferðafélag Ísfirðinga og undir leiðsögn Heimis G. Hanssonar. Það var ótrúlega gaman að sjá 40 manns mæta í þá göngu og gefa fólki tækifæri til að tala íslensku fyrir utan kennslustofuna.


Að læra tungumál og aðlagast nýju samfélagi getur verið erfitt, rétt eins og fjallgangan. Þú gætir verið þreyttur eða óöruggur og viljað gefast upp. En rétt eins og í göngunni okkar – þegar þú nærð toppnum og sérð útsýnið, þá veistu að erfiðið var þess virði.
Toppmæting á hraðíslensku
Svo var aldeilis góð stemning þegar lokaviðburður sumardagskrárinnar fór fram þann 5. ágúst í Dokkunni á Ísafirði.
Alls mættu tuttugu og sjö manns til að spjalla og æfa sig í hraðíslensku, sem er metmæting þegar kemur að þátttöku. Skipuleggjendur voru mjög ánægðir með hversu margir mættu, þótt þeir vonist til þess að sjá enn fleiri móðurmálshafa taka þátt í næstu skipti.

Við hlökkum til að halda áfram
Þátttakendur þurfa þó ekki að örvænta ef þeir vilja halda áfram að æfa tungumálið, því stefnt er að því að taka þráðinn upp á nýjan leik í haust, ef nægur áhugi er meðal íbúa.
Við vonum að viðburðir sem þessir auki sýnileika málsins og opni augu fólks fyrir því hversu stórt hlutverk móðurmálshafar geta gegnt í máltöku. Með því að bjóða fólk velkomið inn í íslenska málsamfélagið á afslappaðan hátt styrkjum við samfélagið allt!

