Gefum íslensku séns: Saman byggjum við brú á milli tungumála

Nýlega hélt Gefum íslensku séns hugarflugsfund þar sem rætt var um hvernig við getum öll unnið saman að því að gera íslenskuna aðgengilegri og opnari fyrir alla í samfélaginu.

Fundurinn var virkilega hvetjandi og margar góðar hugmyndir litu dagsins ljós. Hér eru helstu punktar sem við ætlum að vinna áfram með.

Vitundarvakning: Við erum öll kennarar

Eitt af aðalatriðum fundarins var hugtakið „almannakennari“. Það þýðir að við erum öll kennarar í daglegu lífi. Hér eru nokkrar leiðir til að vekja athygli á þessu:

  • Sýnileiki: Við viljum sjá skilti og hvatningu á veitingastöðum, vinnustöðum og í búðum sem hvetja fólk til að tala íslensku.
  • Mistök eru góð: Við viljum leggja áherslu á að gera mistök er eðlilegur hluti af því að læra nýtt tungumál. Við hvetjum alla til að vera þolinmóðir í samskiptum.
  • Fjölmiðlar og samfélagsmiðlar: Við sjáum fyrir okkur samstarf við fjölmiðla. Við viljum sýna hvernig er hægt að tala skýra og hæga íslensku í daglegum aðstæðum í greinum og myndböndum.

Viðburðir: Að hittast og skapa tengsl

Til þess að málnemar og málhafar geti æft sig saman þurfum við fleiri vettvanga. Á fundinum komu fram fjölmargar hugmyndir að viðburðum, svo sem:

  • Félagsstarf: Gönguhópar, spilakvöld, prjónaklúbbar, bíókvöld og matarklúbbar.
  • Listir og menning: Ljóðalestur, söngur í kór, leiklist og jafnvel „pöbbkviss“ á einfaldri íslensku.
  • Nám og stuðningur: Tungumálaskipti og umræðufundir þar sem allir fá að láta í sér heyra.

Hvernig ætlum við að halda þessu gangandi?

Við erum öll hluti af þessu verkefni. Við hvetjum vinnustaði til að tilnefna fulltrúa sem halda utan um íslenskusamtöl í kaffitímum. Einnig viljum við fá fleiri sjálfboðaliða til liðs við okkur – hvort sem það er að skipuleggja viðburði eða vera tengiliðir í sínu hverfi.

Ert þú tilbúin(n) að vera með? Við erum spennt að halda áfram með þessi verkefni. Ef þú hefur áhuga á að hjálpa til, skipuleggja viðburð eða gerast „almannakennari“, endilega hafðu samband við okkur!

Við erum öll í þessu saman – Gefum íslensku séns!