Hraðíslenska (stefnumót við íslensku) á Ísafirði er á laugardaginn

Viðburður sem lýtur svipuðum lögmálum og hraðstefnumót nema að markmiðið er að tala íslensku. Móðurmálshafar æfa sig að tala skýrt og hægt og gera allt sem þeir geta til að gera sig skiljanlega á íslensku. Þeir sem læra æfa sig í íslensku. Móðurmálshafinn og sá sem talar á pari við slikan, er almannakennari og æfir sig í því hlutverki. 

Búum saman til rými til að gefa fólki tækifæri til að nota það sem það kann í íslensku án þess að nokkuð liggi við. Gerum þetta allt með bros á vör og gleðina að vopni.

Hvar? Á Dokkunni
Hvenær? 9. maí, kl. 16:00

Gerum þetta saman (það er gaman).