Íslenskuhittingur á Flateyri 27. janúar klukkan 19:00

Annar íslenskuhittingur ársins á sér stað á Flateyri á mánudaginn (27.1.) klukkan 19:00. Grundarstígur 22. Sjá síðasti var ekki svo vel sóttur svo við bindum vonir við að þessi verði það. Aðalatriðið er samt að bjóða upp reglulega upp á stað þar sem fólk kemur saman og notar íslensku, heimafólk jafnt sem innflytjendur. Tækifærin verða að vera til staðar. Séu þau það ekki lærir fólk ekki málið. Svo einfalt er það.

Íslenska er mál okkar allra. Besta leiðin við að bjóða fólk velkomið í (mál)samfélagið er að hjálpa því að ná tökum á íslensku, opinberu máli landsins. Þannig er nú það. Viltu vera með?

Hér erum við á Facebook: Íslenskuhittingur – Önundarfirði | Facebook