16. nóvember er Dagur íslenskrar tungu. Íslenskt mál er að tæknivæðast eins og allt í okkar samfélagi. Er því tilvalið að standa að kynningu á hinum tæknivædda íslenskukennara (TVÍK (tvik.is) í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða (Gefum íslensku séns fær pláss í Vísindaporti Háskólaseturs) föstudaginn 15.11. Tæknin getur örugglega hjálpað við máltileinkun. Tékkaðu á því!
Verður líka á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/69947471079
Og hér fyrir neðan frá höfundi TVÍK (líka á ensku)
Viltu kynnast TVÍK, hinum tæknivædda íslenskukennara?
Meet TVÍK, the technology-powered Icelandic teacher!
TVÍK (tvik.is), eða hinn tæknivæddi íslenskukennari, er stafrænt íslenskunámskeið sem tekur nemandann í gegnum gagnvirk og raunveruleg samtöl og er öllum mögulegum tækjum og tólum búið til þess að aðstoða hann til að auka færni í samræðum og ýta undir sjálfsöryggi í samskiptum í gegnum eftirminnilegar sögur.
Stafræni heimurinn TVÍK býður íslenskunemanum í ævintýralegt ferðalag um ókunnuga staði með einstökum sögupersónum og hollum skammti af dramatík og spennu. TVÍK hermir eftir raunverulegu samfélagi, séð og matreitt frá sjónarhóli sérvits vélmennis. Nemandinn er kynntur fyrir hinu hráa, mannlega og flókna Íslandi, hliðum landsins og tungumálsins sem sjaldan fá þá athygli sem þær eiga skilið; ekki eingöngu álfa, fjöll og lopapeysur, heldur nútímamenningu sem endurspeglast í daglegum samskiptum, sambandi okkar við tækni, bröndurunum okkar, pólítískri óreiðu og fjölbreytileika.
Verkefnið vann Gulleggið snemma árs 2022 og hefur verið í virki þróun síðan, og er nú á lokametrunum með að klárast. Gamithra, stofnandi TVÍK fer með okkur yfir sögu verkefnisins, kynnir okkur fyrir TVÍK og vinum hans, og að sjálfsögðu verður hægt að prófa hugbúnaðinn á leiðinni.
TVÍK (tvik.is), or the technology-powered Icelandic teacher, is an innovative digital Icelandic course designed to guide students through engaging, interactive conversations. It’s equipped with tools to foster conversational skills and build confidence through memorable story-driven learning experiences.
In the digital world of TVÍK, students embark on an adventurous journey through unfamiliar Icelandic landscapes, filled with unique characters and a generous dose of drama and excitement. TVÍK is a simulation of real Icelandic society, told from the quirky perspective of an eccentric robot. It reveals the raw, human, and complex sides of Iceland and its language that often go unnoticed—beyond just elves, mountains, and traditional wool sweaters, TVÍK explores contemporary Icelandic culture, daily interactions, our relationship with technology, Icelandic humour, political chaos, and diversity.
The project won Gulleggið in early 2022 and has been under active development since, now reaching its final stages. Gamithra, the founder of TVÍK, will walk us through the project’s story, introduce us to TVÍK and its friends, and of course, offer a chance to try the software.
Nokkur orð um mig:
Gamithra (gamithra.com) er upprunalega frá Eistlandi en flutti 17 ára til Íslands út af brennandi áhuga á íslenskri menningu og lærði íslensku á sveitabæ í Aðaldal. Hún byrjaði að forrita á unglingsárunum og áður en hún ákvað að einbeita sér að laga aðgengisvanda að íslenskukennslu vann hún meðal annars sem hakkari og netöryggissérfræðingur hjá Syndis og rannsakaði myndun stafrænna félagslegra tengsla hjá CCP. Hún er einnig meðstofnandi Samtaka um mannvæna tækni þar sem hún brennur fyrir því að finna skalanlegar lausnir við samskiptavandamálum nútímans og finna leiðir til að ýta tækni í átt að mannvænni framtíð.
Gamithra (gamithra.com) is originally from Estonia but moved to Iceland at 17, drawn by a deep passion for Icelandic culture, and learned Icelandic on a sheep farm in Aðaldalur. She started programming as a teenager and, before shifting focus to improving access to Icelandic language education, worked as a hacker and cybersecurity specialist at Syndis, and researched the formation of digital friendships at CCP. She also co-founded the Icelandic Association for Human Technology, driven by a passion to find scalable solutions for modern communication challenges and pushing technology towards a more humane future.

