Um verkefnið

Um verkefnið

Gefum íslensku séns

Verkefnið er átak sem miðar að því að auka vitund fólks fyrir máltileinkun. Að auka vitund fólks, aðallega íslenskra móðurmálshafa fyrir því hve þeirra framlag er mikilvægt í að kenna íslensku. Við erum öll almannakennarar þegar kemur að því að miðla tungumálinu til þeirra sem vilja læra það.

Verkefnið er hýst hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða Suðurgötu 12 Ísafirði

Rekja má hugmyndina af verkefninu til ársins 2007 þegar sumarnámskeið í íslensku sem annað mál hófust við Háskólasetur Vestfjarða. Þau voru aðallega hugsuð fyrir háskólaskiptinema til að byrja með. Frá byrjun var lagt upp með samfélagsþáttöku, bæði íbúa og þjónustufyrirtækja. Verslunareigendur voru hvattir til að sýna þolinmæði og umburðarlyndi til þeirra sem vildu spreyta sig á þeirri íslensku sem þeir höfðu á valdi sínu.

Árið 2021 var byrjað með lítið átak sem gekk undir nafninu Íslenskuvænn staður. Þá var biðlað til verslana, veitingastaða og stofnanna í Ísafjarðarbæ að tala íslensku við íslenskunemendur Háskólaseturs Vestfjarða en jafnframt voru staðirnir fengnir til að skuldbinda sig til að laga mál sitt að íslenskuþörfum þeirra sem spreyttu sig á henni. Þeir staðir sem vildu fá sig titlaðan sem íslenskuvænan fengu vegspjald til að setja í gluggann og nemendur gátu þá gengið út frá því sem vísu að þar fengju þeir að tala íslensku, að þar yrði ekki skipt yfir á ensku heldur allt gert til að gera sig skiljanlegan á íslensku.

Átakið hlaut Evrópumerkið fyrir verkefnið „Gefum íslensku séns- íslenskuvænt samfélag árið 2023.

Í umsögn dómnefndar kom fram að þetta væri fyrirmyndarverkefni sem félli vel að markmiðum Evrópumerkisins. Innflytjendum væri veittur stuðningur við að læra tungumál heimamanna og að allt fólk hefði aðgang að þeim björgum sem nauðsynlegar eru til að verða virkur þátttakandi í samfélaginu.

Árið 2022 var átakið víkkað út undir nafninu  Íslenskuvænt samfélag – við erum öll almannakennarar 

Bætt var við qr-kóða með upplýsingum fyrir alla þá sem vildu spreyta sig á íslensku. Þannig færði átakið út kvíarnar og snerist ekki einvörðungu um íslenskunámskeið Háskólaseturs og íslenskunemendur þess.

Árið 2023 var átakið víkkað enn frekar og haldið úti á því sem næst ársgrundvelli með fjöldanum öllum af uppákomum og viðburðum. Nafni átaksins var jafnframt breytt og varð að Gefum íslensku séns – íslenskuvænt samfélag. Fjöldinn allur af viðburðum var haldinn sem miðaði að því að blanda saman ólíkum hópum og æfa fólk í notkun íslensku. Það var líka gert með það að marmiði að íslenskir móðurmálshafar mættu á viðburðina til að þjálfa og opna þannig samfélagið fyrir þeim íbúum sem vildu spreyta sig á íslenskunni.  

Verkefnið Gefum íslensku séns er að vinna með hugtakið Almannakennari og þá er vísað í að við erum öll almannakennarar þegar kemur að því að því að samfélagið axli ábyrð á að miðla tungumálinu til erlendra íbúa.  Hugtakið stjálft á eftir að útfæra og markmiðið er að gefa út handbók fyrir almenning.

Að vera almannakennari er bara að taka samtalið á íslensku, út í búð, á kaffihúsinu, á götuhorninu og í fermingaveislunni , það er ekki kennari en gefum málinu séns þangað til annað kemur í ljós !

Haustið 2024 var gerður samstarfssamningur um stuðning við þróun verkefnisins við menningar- og viðskiptaráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. Samningurinn felur í sér að þróa verkefnið og kynna. Þá er markmiðið að efla áhuga innflytjenda á að læra og æfa sig í íslensku sem og að hvetja til vitundarvakningar um hvernig samfélög geta best skapað aðstæður til þess. Verkefnastjóri var ráðinn og er það Halla Signý Kristjánsdóttir.

Markmiðið Gefum íslensku séns er því í sem fæstum orðum, að stuðla að auknum möguleikum fólks í notkun íslensku á sem víðtækastan og fjölbreyttastan hátt, að fólk sem lærir málið, sama hvar á vegi það er á vegi statt , fái stuðning og skilning þeirra sem hafa vald á íslensku. Átakið snýst því fyrst og fremst um vitundarvakningu, hvað felst í því að læra málið, hvernig við sem samfélag getum stuðlað að framförum fólks í íslensku, að fólk hafi tækifæri til að nota málið við sem flest tækifæri.