Hátíðardagskrá GÍS í Hömrum

Laugardaginn 15. nóvember var hátíðardagskrá á vegum Gefum íslensku séns, í Hömrum á Ísafirði.

Dagskráin hófst á því að barnakór Tónlistarskólans á Ísafirði söng lagið, Á íslensku má alltaf finna svar, undir stjórn Dagnýjar Hermannsdóttur.

Catherine Chambers flutti ávarp, hún talaði um að mikilvægt væri að kenna, hlusta og leiða, þegar kæmi að því að miðla íslenskunni.

Vaida Braziunaite sagði frá hvernig hún lærði íslensku og íslenskunámi sem hún hefur lokið. Hún sagði líka frá því hvernig mamma hennar, sem býr í Litáen, fékk áhuga á lesa íslenskar bókmenntir og hefur mikinn áhuga á íslenskri menningu.

Anna Þuríður Sigurðardóttir og Linda Björg Guðmundsdóttir fluttu nokkur lög.

Íslenskusénsinn var afhentur og í ár var það Ólafur Guðsteinn Kristjánsson sem hlaut viðurkenninguna. Efnt var til tilnefningar og var það ótvíræð niðurstaða að Ólafur ætti heiðurinn skilið í ár. Beðið var um rökstuðning með tilnefningu. Dæmi um rökstuðning:

Ólafur Guðsteinn Kristjánsson hefur sýnt gríðarlegt frumkvæði með því að leggja af stað með verkefnið: „Gefum íslensku séns“. Hann hefur beitt fyrir því að við tölum íslensku vítt og breitt um samfélagið til að sporna við því að enskan taki ýmis hversdagsleg samskipti yfir. Til að íslenskan lifi í samtímanum og eflist, þá þurfum við íslenskufrumkvöðla eins og Ólaf Guðstein Kristjánsson.

Dagskráin í Hömrum var haldin í tilefni af degi íslenskrar tungu.