Gefum íslensku séns vill verðlauna fyrir að gefa íslensku séns.
Hér er óskað eftir tilnefningum. Hvern telur þú verðskulda viðurkenningu á degi íslenskrar tungu á árinu 2025 á Vestfjörðum. Hvaða fyrirtæki, stofnun, félagasamtök hafa unnið mest og best að því að gera íslenskunni hærra undir höfði. Það er líka hægt að tilnefna einstakling.
Tilnefningunni má fylgja rökstuðningur.
Gefum íslensku séns er hluti af inngildingu íbúa sem flytja hér til landsins og vilja aðlagast íslensku samfélagi. Verkefnið Gefum íslensku séns stuðlar að auknum möguleikum við notkun íslensku fyrir alla sem læra málið með hjálp þeirra sem hafa það á valdi sínu.
Verðlaunin heita Íslenskusénsinn og verða afhent á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember nk.
Hlekkur má finna hér

