
Gefum íslensku séns tók þátt í ráðstefnu sem bar yfirskriftina Samfélagið er lykill að íslensku. Ráðstefna um kennslu íslensku sem annars máls. Ráðstefnunni er ætlað að bregðast við ákalli samfélagsins, innflytjenda, framhaldsfræðsluaðila og háskóla um mikilvægi samráðsvettvangs er varðar kennslu íslensku sem annars máls og þá sérstaklega kennslu fullorðinna.
Á dagskrá var vinnustofa þar sem kynning á átakinu fór fram og var skipt upp í vinnuhópa til að velta upp hugmyndum hvernig væri hægt að koma átakinu betur á framfæri.
Komu fram margar hugmyndir og urðu líflegar umræður um málefnið. Það er ljóst að Gefum íslensku séns á fullt erindi inn í íslenskt samfélag og tekið var undir að við værum öll almannakennarar þegar kemur að því að kenna erlendum íbúum tungumálið.
