Haustdagskrá 2025

Gefum íslensku séns vinnur nú að haustdagskránni. Það eru ráðgerðir íslenskuhittingar á sem flestum stöðum á Vestfjörðum. Auk þess að það verða viðburðir eins og lopapeysuprjón og gönguferðir. Finna má drög að dagskrá hér https://gefumislenskusens.is/dagskra-2025/

Gefum íslensku séns heldur dag íslenskrar tungu hátíðlegan og tekur þátt í ráðstefnu á Akureyri sem hefur yfirskriftina Samfélagið er lykill að íslensku.

Við erum opin fyrir hugmyndum um hvernig við getum glætt átakið Gefum íslensku séns með viðburðum eða öðru sem miðar að því að auka vitund fólks fyrir máltileinkun. Að auka vitund fólks, aðallega íslenskra móðurmálshafa fyrir því hve þeirra framlag er mikilvægt í að kenna íslensku. Við erum öll almannakennarar þegar kemur að því að miðla tungumálinu til þeirra sem vilja læra það.

Gefum íslensku séns verkefnið er hýst hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða og hægt er að hafa samband í gegnum Facebook síðu verkefnisins eða á netfangið hallasigny@frmst.is.