Hraðíslenska í Súðavík, Gamla pósthúsið

Hraðíslenska í Súðavík laugardaginn 12. ágúst klukkan 17:00
Viltu vera með og hjálpa okkur að æfa okkur í að tala, að læra íslensku? Verið öll velkomin.
Það að flytja til annars lands í nýtt málumhverfi er áskorun. Að læra nýtt tungumál ásamt því að aðlaga sig breyttu umhverfi er áskorun en tungumálið er lykilinn að samfélaginu og samfélagið er lykilinn að tungumálinu.

Einu sinni á ágústkvöldi
austur í Þingvallasveit
gerðist í dulitlu dragi
dulítið sem enginn veit,
nema við og nokkrir þrestir
og kjarrið græna inn í Bolabás
og Ármannsfellið fagurblátt
og fannir Skjaldbreiðar
og hraunið fyrir sunnan Eyktarás.
Þó að æviárin hverfi
út á tímans gráa, rökkur-veg,
við saman munum geyma þetta
ljúfa leyndarmál,
landið okkar góða, þú og ég.

Jónas Árnason