
Hraðíslenska var tilefni samkomu í Súðavík miðvikudaginn 25. júní . Það var vel sótt og greinilega áhugi á verkefninu mikill í samfélaginu. Vel heppnað íslensku námskeið á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða var nýlokið sem 14 manns sótti.
33% íbúa Súðavíkur eru af erlendum uppruna og hafa annað móðurmál en íslensku. Því þarf sameiginlegt átak allra íbúa að læra og kenna íslenskuna sem er opinbert mál okkar sem búum hér og mikilvægt að allir hafi sem best tök á málinu.
