Hraðíslenska í Súðavík 25. júní 2025 klukkan 17:00

Viltu vera með og hjálpa okkur að æfa okkur í að tala, að læra íslensku? Verið öll velkomin í Gamla Pósthúsið í Súðavík miðvikudaginn 25. júní klukkan 17:00

Það að flytja til annars lands í nýtt málumhverfi er áskorun. Að læra nýtt tungumál ásamt því að aðlaga sig breyttu umhverfi er áskorun en tungumálið er lykilinn að samfélaginu og samfélagið er lykilinn að tungumálinu.