Íslenskunámskeið á vegum Háskólasetursins í sumar

Háskólasetur Vestfjarða býður upp á íslenskunámskeið í sumar. Íslenskunámskeiðin notast við Evrópska tungumálarammann og eru á erfiðleikastigi frá A1 (byrjendur) til B2 (framhaldsnemar). Hægt er að finna upplýsingar um námskeiðin inn á vefsíðu Háskólasetursins https://www.uw.is/is/meistaranam/islenskunamskeid/byrjendur-a1 Þar segir:

Á þessari síðu má sjá yfirlit yfir þau íslenskunámskeið sem Háskólasetur Vestfjarða hefur upp á að bjóða. Sérstaða námskeiðanna er staðsetningin. Ísafjarðarbær er lítill bær sem þó hefur flest það sem einkennir stærri bæi. Hér er bíó, veitingastaðir, tónlistarskóli, sundlaug, íþróttafélög, kórar og svo framvegis. Íslenskunámskeiðin færa sér þetta í nyt auk þess sem bæjarbúar eru oftast mjög viljugir til að hjálpa til við íslenskunámið og gefa sér tíma. Ísafjörður er enda venjulega frekar rólegur staður þar sem hlutirnir þurfa ekki alltaf að ganga hratt fyrir sig. Við reynum alltaf að gera samfélagið að hluta námskeiðanna enda trúum við því að tungumál lærist best með því að nota það. Í kennslustofunni fá nemendur tól og tæki málsins en úti í samfélaginu tækifæri til að nota það sem þeir læra í skólanum og hvata til þess