Háskólasetur Vestfjarða 20 ára

Í dag 14. mars var opið hús í Vestrahúsinu í tilefni þess að Háskólasetur Vestfjarða fagnaði 20 ára afmæli.
Á opna húsinu kynntu stofnanir og fyrirtæki sig og voru með ýmsar uppákomur þar sem bæjarbúar og gestir nýttu tækifærið og kynntu sér þá fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í Vestrahúsinu. Það voru margir sem nýttu tækifærðið og litu við.

Gefum íslensku séns var með kynningu á verkefninu hjá Fræðslumiðstöðinni. Þökkum við fólki áhugann og heimsóknir.