Í gær fór fram íslenskuhittingur í Blábankanum á Þingeyri sem heppnaðist vonum framar. Gerðar hafa verið margar atrennur að því að koma Gefum íslensku séns á koppinn á Þingeyri en nú virðist verkefnið hafa fengið afar góðan hljómgrunn enda mæting og stemmning mjög fín. Verður áframhald á enda ákveðið að hittast reglulega. Næsti hittingur verður 13.3. í Blábankanum og svo aftur 20.3. Verða þeir viðburðir auglýstir nánar þegar framlíða stundir.

