Og áfram skal haldið. Sitjandi krákur þær svelta. Við höldum ótrauð áfram. Mæting heldur áfram að vera stöðug og liggur upp á við frekar en hitt. Fleiri staðir bætast í hópinn og áhuggi vex. Svo endilega látið sjá ykkur laugardaginn 1. mars klukkan 16:00 á Dokkunni. Hraðíslenska er eitt skref í þá áttina að skapa tækifæri og gera íslensku að sjálfsögðu máli allra eða allavega flestra á Íslandi. Viltu ekki vera memm?

