Hraðíslenska á Dokkunni á laugardaginn (1.2.) klukkan 16:00

Áfram með smjörið! Ekkert gerist af sjálfu sér. Við höldum ótrauð áfram með viðburði Gefum íslensku séns. Mæting hefir farið upp á við undanfarið og samhliða því stemmingin. En betur má samt ef duga skal. Endilega látið sjá ykkur á laugardaginn klukkan 16:00 á Dokkunni og gerum Ísafjörð að Íslenskufirði framtíðarinnar. Hraðíslenska er ef til vill eitt skref í þá áttina að skapa tækifæri og gera íslensku að sjálfsögðu máli allra eða allavega flestra á Íslandi. Viltu vera með?

Hér er viðburðurinn á Facebook: Hraðíslenska/ Stefnumót við íslensku (þýðir ekki að við tölum hratt) | Facebook