Íslenskuhittingur í Bolungarvík 14. janúar klukkan 17:00

Í dag, 14. janúar, er fyrsti íslenskuhittingur ársins í Bolungarvík. Hann byrjar klukkan 17:00 og er, eins og alltaf í Bókasafni Bolungarvíkur, Aðalstræti 21. Allir eru hjartanlega velkomnir og þá sérstaklega móðurmálshafar sem vilja leggja sitt af mörkum til að hjálpa fólki að læra málið (endilega bjóðið fólki sem er að læra með ykkur). Við viljum skapa tækifæri til þess að nota málið saman enda er best að læra í samspili ekki sóló. Allavega oftast. Því trúum við.

Hér erum við á Facebook: (3) Íslenskuhittingur út í Vík | Facebook