Við hjá Gefum íslensku séns-íslenskuvænt samfélag óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs. Auðvitað óskum við ykkur samt einkum íslenskuvæns árs.
Við erum ekki frá því að eitthvað hafi unnist á síðasta ári og að við höfum aðeins náð að auka vitund fólks fyrir máltileinkun þeirra sem ekki hafa íslensku að móðurmáli, að við höfum einnig náð að hvetja fólk til að veita liðsinni við máltileinkun og opna augu og eyru fólks fyrir því að allir geti hjálpað þar til og að íslenska lærist best í samspili, að hún lærist best með því að nota hana sem mest og sem oftast (sé hún ekki notuð lærist hún ekki eða varla). Eigi sú að vera raunin verða tækifærin að vera til staðar. Þau tækifæri viljum við skapa með ykkur gott fólk enda er Gefum íslensku séns fyrst og síðast samfélagsverkefni.
Viðburðir á vegum Gefum íslensku séns voru margir á árinu sem var að líða. Margir og nokkuð fjölbreyttir. Tókst ágætlega til að blanda saman hópum, blanda saman þeim sem hafa íslensku vel á valdi sínu (málhafar) og þeirra sem nema málið (málnemar). Viðburðirnir fóru fram í allskonar formi. Hvort tveggja er mikilvægt.

Í byrjun nýs árs erum við í óða önn að leggja drög að dagskrá ársins 2025 og er markmiðið að hafa dagskrána sem fjölbreytasta og að hún teygji anga sína sem víðast. Nú þegar hefir verkefnið skotið góðum rótum í Bolungarvík og á Flateyri og er auk þess vísir að slíku í Árneshreppi, Súðavík, Patreksfirði og á Hólmavík. Til stendur að hlúa betur að því á árinu og kynna verkefnið sem víðast.
Við stefnum að því að gefa í frekar en hitt og fjölga viðburðum. Sú leið var farin á haustmánuðum að bæta við viðburðum og uppákomum og tókst það vel til. Mæting jókst svo og áhugi á verkefninu.
Svo er gaman að geta þess að Íslenskusénsinn, verðlaun Gefum íslensku séns, var veittur í fyrsta sinn á Degi íslenskrar tungu 2024 og hlaut Menntaskólinn á Ísafirði verðlaunin eftir að hafa hlotið flest atkvæði í opinni kosningu þar sem ófáir fengu atkvæði. Verður örugglega framhald á Íslenskusénsinum en er jafnframt stefnt að því að útdeila íslenskuvottun til þeirra sem uppfylla íslenskuskilyrðin. Um er að ræða eins konar gæðastaðall sem í grunninn felur í sér að íslenskan sé ávallt í boði, að íslenskan sé ávallt fyrsta mál. Nánar um það síðar.

Alltént má ljóst þykja að Gefum íslensku séns er komið til að vera. Komið til að vera allvega um hríð. Því okkar markmið er auðvitað það að verkefnið Gefum íslensku séns verði óþarft, að það að gefa íslensku séns verði jafn sjáfsagt og loftið sem við önum að okkur, að íslenska verði sjálfgefana málið á Íslandi. Er þar enn nokkuð í land. En fyrst og fremst viljum við miðla málinu á jákvæðan og uppbyggilegan hátt í sem víðastri samvinnu enda lærist og æfist málið ALLS EKKI í tómarúmi.
Áfram allrahanda íslenska á árinu 2025!

