Takk, gleðilega hátíð og áfram með smérið!

Verkefnið Gefum íslensku séns – íslenskuvænt samfélag hefir vaxið ágætlega á árinu. Fjölmargir viðburðir hafa átt sér stað á árinu og er nú komin ágæt regla á starfið sem nú býr svo vel að hafa yfir nægilegu fjármagni að ráða til að halda starfinu gangandi og bæta í frekar en hitt. Stöðugildi (50%) hefir meira að segja verið skapað og er það tengt Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Eru því allar líkur á því að starfið verði enn öflugra á komandi ári.

Næsta víst átta sig svo æ fleiri betur á þeirri staðreynd að sé vilji fyrir því að íslenskukunnátta sé almenn meðal innflytjenda á Fróni þurfi að stuðla að hvata, þá þurfi að halda íslensku að þeim sem hingað flytjast og fyrst og síðast tala íslensku. Íslenska lærist ekki nema henni sé haldið að fólki, nema hún sé notuð. Sé enska æ brúkuð, sé enska æ hið sjálfgefna mál lærist og æfist enska. Að því gefnu að viðkomandi hafi málið ekki að móðurmáli.

Í grófum dráttum snýst Gefum íslensku séns einmitt um það; að vera eins konar framlenging á kennslustofunni (auðvitað þarf einnig að auka framboð íslenskunámskeiða, alls konar námskeiða til muna) og bjóða upp á séns á því að nota málið sem því miður er ekki sjálfgefið á Íslandi.

Það hlýtur að teljast stórkostlega öfugsnúið að enska sé oftlega sjálfgefið mál lands þar sem íslenska er opinbert mál. Auk þess sem slíkt stuðlar, þegar vel er að gáð, að aðgreiningu og misskiptingu. Það er augljóst mál að þeir sem síður hafa málið á valdi sínu búa að færri möguleikum auk þess sem þeir eru ólíklegri til að vera þátttakendur í lýðræðislegri umræðu sem, viti menn konur og kvár, fer fram á íslensku og mun gera það áfram.

En hvað um það. Ég er ánægður með að hafa notið velvilja margs góðs fólks hér fyrir vestan við að gera verkefnið að því sem það er. Er það og von mín að það muni dafna á komandi ári undir stjórn nýs verkefnsstjóra undir handbendi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. En ég kem til með að hætta beinum afskiptum af Gefum íslensku séns í febrúar á næsta ári.

Verkefnið er alltént komið á þann stað að það hefir alla burði til að vaxa og dafna enn frekar.

Svo óska ég ölllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, verkefnastjóri Gefum íslensku séns