Það er mjög ánægjulegt hve góður stígandi hefir verið í starfinu í Bolungarvík. Mæting hefir verið fín og skynjum við aukinn áhuga þar á bæ. Það var augljóslega hárrétt ákvörðun að fjölga skiptum en undanfarið hafa verið hittingar á Bókasafni Bolungarvíkur einu sinni í viku. Virðist því vera full ástæða til að halda áfram á sömu braut í janúar og verður það næsta víst gert.

