Skiptum fjölgað í Bolungarvík

Það er mjög ánægjulegt að tilkynna að nú verður prófað að fjölga skiptum í Bolungarvík. Verða viðburðir (hraðíslenska/þriðja rýmið) í hverri viku til jóla eða þrjár næstu vikur. Næsta skipti á sér stað 3.12. svo 10.12. og loks 17.12. Alltaf verður byrjað klukkan 18:00. Við trúum því að möguleikum þurfi að fjölga uns íslenskan verði svo sjálfgefin að ekki þurfi viðburða sem slíkra við, að ekki þurfi verkefnis sem Gefum íslensku séns lengur við.

Viðburðir eiga sér alltaf stað í Bókasafni Bolungarvíkur, Aðalstræti 21.