Við þökkum öllum fulltrúum flokkanna sem tóku þátt í umræðunum í gær um stöðu íslensku sem annars máls. Góðar og prúðmannlegar umræður sem hafa örugglega opnað augu einhverja fyrir áherslum flokkanna í þessum málaflokki. Allir þátttakandur stóðu sig með prýði og heppnaðist kveldið vel þótt mæting hefði vissulega mátt vera betri (bæði áhorfendur og hvað fulltrúa flokkanna áhrærir). En það verður vonandi næst því þótt kosningar verði brátt um garð gegnar þá verður téð mál auðvitað enn miklvægt umræðuefni og úrlausnarefni.
Píratar, Vinstri græn, Framsókn, Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn voru með fulltrúa og Flokkur fólksins afboðaði sig vegna óviðráðanlegra aðstæðna.





