Þriðja rýmið verður sunnudaginn 24.11. á Heimabyggð klukkan 13:30. Sjáumst þar og spjöllum á allrahanda íslensku.
Aðalreglan er að tala íslensku, alls konar íslensku, með alls konar hreim, gera alls konar mistök, enda þarf að gera mistök til þess að læra af þeim. Sá sem gerir ekki mistök er líklega ekki að reyna. Mistök eru góð.
Bestu þakkir Heimabyggð fyrir að hýsa viðburðin.

