Staða íslensku sem annars máls – fulltrúar flokkanna kynna sínar áherslur

Gefum íslensku séns býður til umræðu um stöðu íslensku sem annars máls með fulltrúum stjórnmálaflokkanna á Dokkunni föstudaginn 22. nóvember klukkan 17:00.

Boð hefir verið sent á alla flokka sem eru bjóða sig fram til alþingis.

Þar gefst fulltrúum flokkanna tækifæri til að gera grein fyrir afstöðu síns flokks til málsins. Þátttakendur hafa verið beðnir um að nota einfaldari íslensku með að að markmiði að sem flestir geti skilið og fylgst með enda varðar málið ekki síst þá sem málið læra.

Fyrirkomulag verður svohljóðandi. Hver fulltrúi fær fimm mínútur til að gera grein fyrir afstöðu síns flokks. Dregið verður um röðina. Að því loknu býðst viðstöddum að spyrja þátttakendur spurninga.
Verður þó einn aðalspyrill sem leiða mun verði hörgull á spurningum.

Sjáumst á Dokkunni 22.11. klukkan 17:00.

Hér er viðburðurinn á Facebook: Staða íslensku sem annars máls – fulltrúar flokkanna kynna sínar áherslur | Facebook

Þessir aðilar koma fram fyrir sinn flokk:

Flokkur fólksins: Bragi Þór Thoroddsen
Framsóknarflokkurinn: Sædís Ólöf Þórsdóttir
Píratar: Derek Terell Allen
Samfylkingin: Gylfi Þór Gíslason
Sjálfstæðisflokkur: Dagný Finnbjörnsdóttir
Viðreisn: Gylfi Ólafsson
Vinstri græn: Sigríður Gísladóttir