Dagur íslenskrar tungu tókst vel til hjá Gefum íslensku séns – íslenskuvænt samfélag. Mæting á viðburði var fín og stemningin var það einnig. Það er og gaman að greina frá því að Menntaskólinn á Ísafirði fékk flest atkvæði í kosningunni um Íslenskusénsinn 2024. Heiðrún Tryggvadóttir skólameistari Menntaskólans á Ísafirði veitti verðlaunagripnum viðtöku úr hendi Braga Þórs Thoroddsen bæjarstjóra Súðavíkur á Dokkunni. Er Menntaskólinn einkar vel að verðlaununum komin og verða verðlaunin vonandi frekari hvatning á íslenskubrautinni í Menntaskólanum svo og á Vestfjörðum almennt séð.



