ÞRIÐJA RÝMIÐ Á HEIMABYGGÐ

Það er ánægjulegt að tilkynna að Þriðja rýmið verður annan hvern sunnudag á Heimabyggð í vetur. Þar af leiðandi verður Þriðja rýmið tvisvar í mánuði, á bókasafninu og á Heimabyggð. Tanguy Patrac ætlar að stýra rýminu sunnudaginn 27. október og mun gera það með myndarbrag.

Aðalreglan er að tala íslensku, alls konar íslensku, með alls konar hreim, gera alls konar mistök, enda þarf að gera mistök til þess að læra af þeim. Sá sem gerir ekki mistök er líklega ekki að reyna. Mistök eru góð.

Bestu þakkir Heimabyggð fyrir að hýsa viðburðin.