Gefum íslensku séns ætlar að vera enn sýnilegra í vetur. Gefum íslensku séns ætlar að fjölga viðburðum og búa til þétta og góða dagskrá í vetur. Gefum íslensku séns ætar að fjölga rýmum og tækifærum til að nota íslensku. Og íslenskan þarf þig. Viltu vera með?
En aftur að Þriðja rýminu og hraðíslensku. Þar erum við að gera breytingar. Í vetur verða Þriðja rýmið og hraðíslenska á tveggja vikna fresti á laugardögum
Hraðíslenskan verður næst 19. október klukkan 16:00 á Dokkunni og eftir það annan hvern laugardag:
2.11.
16.11.
30.11.
14.12.
Þriðja rýmið verður mánaðarlega á bókasafninu einnig á laugardögum en frá 13:30 til 14:30. Svo verður Þriðja rýmið á sunnudögum en vð eigum eftir að finna stað.
Hér eru dagsetningar fyrir Þriðja rýmið fram til áramóta.
12.10. Bókasafnið
27.10. Staður verður tilkynntur brátt
9.11. Bókasafnið
24.11. Staður verður tilkynntur brátt
7.12. Bókasafnið
22.12. Staður verður tilkynntur brátt
Við ætlum einnig að standa að fyrirlestrum, uppákomum og öðrum viðburðum auk þess sem við höldum áfram að stuðla að sýnileika íslenskunar. Það eru spennandi tímar í vændum hjá Gefum íslensku séns.

