GEFUM ÍSLENSKU SÉNS Í SUMAR – SUMARDAGSKRÁ

Í sumar stendur ýmislegt til hjá Gefum íslensku séns – íslenskuvænt samfélag. Allir viðburðirnnir hafa það að markmiði að blanda saman hópum móðurmálshafa og þeirra sem læra málið þannig að móðurmálshafinn fái sig spreytt á hlutverki almannakennara, að hann fái tækifæri til að aðstoða við máltileinkun.

Hér er dagskráin og ögn nánari útlistun fylgir fyrir neðan.

Þriðja rýmið – 8. júlí, klukkan 16:45 á Bókasafninu, Ísafirði

Viltu æfa þig að tala íslensku? Þetta er staðurinn!
You want practice speaking Icelandic? This is the place!

Við viljum skapa öruggan stað fyrir fólk til að æfa sig í að nota alls konar íslensku og stað þar sem móðurmálshafar koma og veita sitt liðsinni, gegna hlutverki almannakennara.

Ekkert tungumál lærist nema það sé notað og við verðum að gefa fólki tækifæri til þess og einnig að haga okkar máli samkvæmt getustigi þess sem við tölum við. Máltileinkun gengur í báðar áttir.

Íslenskubingó – 12. júlí, klukkan, 18:15 í Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði

Bingóstýra Guðrún Sigríður Matthíasdóttir (Gunna Sigga)

íslenskubingó til þess að æfa tölurnar og hafa það gaman. Byrjar klukkan 18:15.

Heimsókn í Haukadal – 16. júlí, klukkan 12-17 í Haukadal

Farið verður á söguslóðir Gísla sögu í Haukadal og gengin Gíslaganga ásamt fleiru. Elfar Logi Hannesson tekur á móti hópnum og fylgir honum um Haukadal.

Tólf lyklar 25. júlí, klukkan, 14:45 í Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði

Kristín Guðmundsdóttir kynnir bók sína Tólf lyklar sem er bók fyrir fólk af erlendum uppruna

Hús segja sögu – 30. júlí, klukkan 14:45 í Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði
Vaida Bražiūnaitė


Mörg hús á Ísafirði eru með mikla og flotta sögu. Húsið hennar Dísu á bökkunum, Albertshús, hefur verið fastur punktur í götumynd Ísfirðinga í tæp 130 ár. Árið 2016 tóku barnabarnabarnabarn Dísu og fjölskyldan hans, við húsinu og byrjuðu að endurbyggja það. Margar gersemar fundust og áhugaverð saga af húsi verður kynnt. Við ferðumst um bæinn í gegnum myndir og hressum upp á sögu nokkurra áhugaverðra húsa á Ísafirði.

Kómedíuleikhúsið bregður á leik – 31. júlí, klukkan 18:15 í Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði

Kómedíuleikhúsið er fyrir löngu orðin ómissandi hluti af vestfirsku menningarlífi. Og nú gefst tækifæri til að fræðast aðeins um þetta merkilega leikhús og eina atvinnuleikhús Vestfjarða.

Eiríkur Örn Norðdahl – 1. ágúst, klukkan 14:45 í Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði

Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl kemur og talar um skáldskap sinn. Hann les líka upp hljóðaljóð sem hann er þekktur fyrir. Tækifæri verður líka til að spjalla við hann.

Innflytjendabókmenntir – 5. ágúst, klukkan 18:15 í Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði
Vaida Bražiūnaitė

Fjallað verður um falleg ljóð og texta eftir íslenska rithöfunda af erlendum uppruna á Íslandi. Áhersla verður lögð á skilning á orðaleikjum og sköpun við notkun íslensks tungumáls í innflytjendabókmenntum.
„Á einhvern hátt er líka auðvelt fyrir innflytjendur sem eiga ekki íslensku sem móðurmál að leika sér með það á annan hátt en Íslendingar gera.“  // Natasha S., ljóðskáld.

Heimsókn í Haukadal – 6. ágúst, klukkan 12-17 í Haukadal

Farið verður á söguslóðir Gísla sögu í Haukadal og gengin Gíslaganga og hlýtt á sögustund í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal. Elfar Logi Hannesson tekur á móti hópnum og fylgir honum um Haukadal.

Hraðíslenska – 7. ágúst, klukkan 18:15, Dokkan, Ísafirði

Við hittumst á á Dokkunni brugghús og hittum Íslendinga eða fólk sem talar vel íslensku og æfum okkur að tala íslensku. Grunnhugmyndin er að þetta verði eins og stefnumót en bara til þess að æfa íslensku og kynnast fólki sem talar íslensku.