Föstudaginn 12. júlí verður íslenskubingó í Háskólasetri Vestfjarða, Suðurgötu 12. Leikar hefjast klukkan 18:15. Þetta er gott tækifæri til að æfa tölur og létt spjall í góðum félagsskap. Bingóstýra verður engin önnur en hin eina sanna Gunna Sigga bingómeistari með meiru. Verið hjartanlega velkomin en látið okkur samt vita af komu ykkar með því að skrifa tölvupóst á islenska(hja)uw.is.

